Færsluflokkur: Bloggar

Stjörnumót - úrslit

A og B lið Álftaness lentu í 4. sæti, og C liðið í 5. sæti.  Nánar á www.blak.is

Stjörnumótið - leikjaplan

Þá er leikjaplanið orðið klárt fyrir stjörnumótið. Planið má sjá í heild sinni inn á blak.is en fyrstu leikir hjá okkur eru:

A liðið spilar í 1. deild  og fyrsti leikur kl. 9.10

B liðið í 2. deild fyrsti leikur kl. 9.10

C liðið í 3. deild fyrsti leikur kl 9.50

Mæting er 30 mín fyrir leik og með fkn keppnisskapið í lagi... 

 


Fylkir-Álftanes

Í kvöld spilaði lið Álftaness leik í 2. deildinni á móti Fylki.  Fylkir vann leikinn 3-1, gengur bara betur næst Wink

Stjörnumótið

Stjarnan heldur 50 ára afmælismót laugardaginn 23. okt.  Það er orðin hefð fyrir því hjá okkur að mæta með sem flest lið á það mót, fara svo á Friday's um kvöldið og partý W00t

Margar okkar hafa keppt á sínu fyrsta móti á Stjörnumótum undanfarinna ára.  Það eru allar hvattar til að skrá sig hér í athugasemdir, hvort sem þær eru "nýjar" eða "gamlar". Cool Þjálfarinn raðar svo í liðin Smile


Sigur í 1. leiknum í 2. deild.

Lið Álftaness tók á móti Ými-B í kvöld í sínum fyrsta leik í 2. deild.  Álftanes vann leikinn 3-0, hrinurnar fóru 25-13, 25-17 og 25-18. Wizard


Æfingaleikur

Æfingaleikur verður fyrir 2. deildar liðið við Stjörnuna, á fimmtudag kl. 20:10 í Ásgarði.  Staðfestið mætingu hér í athugasemdum. Smile

Fyrsti leikur í 2. deild

Mánudaginn 11. okt. kl. 19:30 er fyrsti leikurinn hjá okkur í 2. deild, og er hann jafnframt heimaleikur. Wink  Allar að vera klárar a.m.k. 30 mín. fyrir leik.

Eftirtaldar eru boðaðar í þennan leik, og eruð þið vinsamlegast beðnar að staðfesta þátttöku hér í athugasemdum.

Íris Dögg, Matthildur, Sigga Lovísa, Rúna, Katla, Eyrún, Sissa, Sandra Mjöll, Ragga og Hlín.


3. sæti á Haustmóti BLÍ

Við fórum með eitt lið á Haustmót BLÍ á Akranesi í dag, og lentum í 3. sæti Smile  Segja má að spilað hafi verið fyrir "allan peninginn" því spilaðir voru 5 leikir og fóru 4 þeirra í oddahrinu ......... 14 hrinur á rúmum 5 tímum. Whistling  Úrslit einstakra leikja má sjá á www.blak.is


Leikjaplan Haustmótsins

Leikjaplan Hausmóts BLÍ á Akranesi er komið inn á www.blak.is Fyrsti leikur er kl. 8:30.  Allar að vera mættar a.m.k. 30 mín fyrir leik Smile

Haustmót BLÍ á Akranesi

Haustmót BLÍ verður haldið á Akranesi 2. - 3. okt. Nánari upplýsingar á www.blak.is

Vinsamlegast skráið hér í athugasemdir hvort þið ætlið að taka þátt eða ekki Smile


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband