Hittingur laugard. 9. feb.
30.1.2008 | 23:24
Það var rætt á æfingunni í kvöld að hittast laugardagskvöldi 9. feb. eftir að við höldum 3. deildar mótið, hvað segið þið um það? Býður einhver húsnæði?
30.1.2008 | 23:24
Það var rætt á æfingunni í kvöld að hittast laugardagskvöldi 9. feb. eftir að við höldum 3. deildar mótið, hvað segið þið um það? Býður einhver húsnæði?
Athugasemdir
ég er sko til í get to gether þarna um kvöldið.. með húsnæði kemur í ljós.. ef engin getur þá get ég alltaf sent liðið til tengdó
Rúna Lísa (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 08:14
Ég er til í að hittast
Þorgerður (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 10:26
Ég er til í hitting en það er ? með húsnæði.
eyrún Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 10:38
Ég er til í hitting en get því miður ekki lagt til húsnæði í þetta skipti kv. Matthildur
Matthildur (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 13:32
Til í hitting, alveg must að hittast líka svona "utanvallar"
- ekki hvað síst eftir að við "misstum" pottinn...
Vil ekki reka familíuna upp á Skaga 3ju helgina í röð, svo ég á bágt með að leggja til húsnæðið í þetta sinn 
Íris Dögg (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 13:37
Sælar stelpur
get því miður ekki verið með ykkur þetta kvöld...vona að þið skemmtið ykkur vel eins og alltaf
Sigrún Edda (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 14:31
Algjört must að hittast, eftir vel heppnað mót. Þetta snýst jú líka um eitthvað fleira en blak. (vináttu, spilastokk, bjórdósir o.þ.h.) Ég mæli með að einhver með heitan pott aumki sér yfir oss. Annars getum við verið hvar sem er. Ívar verður að flísaleggja baðið, ekki spennandi að vera hjá mér.
Kv Lilja PS Hvað eigum við að borða?
Lilja Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 22:16
Ég gleimdi köllunum





Lilja Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 22:25
hæbb, þar maður á alltaf að segja það sem manni finnst - þá get ég eila ekki sagt til um af eða á núna með get to gether þarna um kvöldið eftir mót - but I am sure gona try
læt vita sem fyrst þegar ég veit það pottþétt..... og með hús þá er kannski erfitt að ákveða það núna........ en ef ég gæti það, er í lagi að kallinn komi með börnin heim um miðnætti og stingi þeim inní herbergi?? kannski getur ekki úthýst þeim mikið lengur.....
Linda pinda (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 22:27
Ég er því miður á leið á vakt um kvöldið... kannski kíki ég áður en ég fer á næturvakt.
Kveðja Hlínsa ofurbloggari
Hlínsan (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 22:47
Hæ Hó
já Hlin þú verð alveg á ostum í blogginu....;)
Sóla búin að bjóða húsið sitt:) hún veit ekki hvað hún er að kalla yfir sig he he...
eða þannig!!!!! ég reikna með að koma um kvöldið þegar þið verðið komnar á trúnó
kemst örugglega ekki í matinn ;/ þarf að mata ungana mína;)
Er orðin ýkt spennt fyrir þessari helgi
gaman að prófa að halda mót á þremur glæsilegum völlum
kveðja Sissa
sissa (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 23:14
Sælar
Ég ætti að komast laugardagskvöldið.
Kv. Heiða
Heiða Hrólfsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 08:54
Hæ,
Ég mæti á laugardagskvöldið
Kv. Bergrós
Bergrós (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 22:30
Er búin að ráðstafa kvöldinu í annað.
Skemmtið ykkur vel. Ætla að mæta með myndavélina og mynda hægri vinstri. Rúna "réð" mig í þá vinnu. Verð samt að vinna eitthvað á laugardeginum en ætla að vera eins mikið og ég get annars.
Helga
Helga (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 11:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.