Bresamót 3. mars

Bresi heldur mót á Akranesi 3. mars, skráið hér í athugasemdir hvort þið verðið með eða ekki.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð ekki með á Akranesi.

Þorgerður Elín (IP-tala skráð) 21.2.2012 kl. 17:23

2 identicon

Kemst ekki, þarf að mæta á tannfræðingafund :(

Lilja R (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 16:13

3 identicon

Mig langar að fara, ef það næst í lið.

(Ég get samt ekki verið á bíl. :( )

Sólrún Ársælsdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 18:07

4 identicon

Ég verð ekki með.

Sigga Dóra (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 22:24

5 identicon

Verð ekki með.

Sigga Lovísa (IP-tala skráð) 23.2.2012 kl. 18:58

6 identicon

Ég get mætt ef næst í lið (ef ekki, get ég líka alveg mætt á Ljótu Hálfvitana á föstudeginum og sofið út á lau ;-)

Íris Dögg (IP-tala skráð) 23.2.2012 kl. 22:17

7 identicon

Ég kemst kannski! Veit það bara ekki alveg eins og er. Verð að fá að sjá til þar sem bæði kallinn minn er erlendis þarna og mikið að gera í vinnunni hjá mér.

Sandra Björk (IP-tala skráð) 23.2.2012 kl. 22:23

8 identicon

reikna ekki með því, er mín helgi með börnin og get ekki verið aðra helgi í röð burtu heilan dag að blakast... þau verða í forgangi þessa helgina ;)

Rúna Lísa (IP-tala skráð) 24.2.2012 kl. 17:06

9 identicon

Sælar. Ég gæti verið til í mót ef það næst í C-lið.  Bkv.

Sólbjörg (IP-tala skráð) 24.2.2012 kl. 19:09

10 identicon

Kemst ekki að öllu óbreyttu.

Selma (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 00:51

11 identicon

Ég get ekki svarað alveg strax um hvort ég geti verið með....

Þorgerður (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 12:30

12 identicon

Sælar,

Ég get ekki svarað því alveg strax hvort ég geti verið með... kemur í ljós í vikunni hvernig gengur að gera húsið mitt klárt og hvort ég sé hreinlega að fara að þrífa það næstu helgi eða hvað.... Verður vonandi komið á hreint á miðvikudaginn...

Berglind (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 17:40

13 identicon

Ég hefði alveg verið til í þetta mót enn mér sýnist við ekki ná í lið. Verð líklegast á skaganum þessa helgi,svo ég mæti og horfi á

Björg (IP-tala skráð) 27.2.2012 kl. 11:18

14 identicon

Sökum lélegrar skráningar, þreytu, leti, eymsla, stirðleika ofl. var sú ákvörðun tekin á æfingu í gær, af þeim sem þar voru, að sleppa þessu móti

Þorgerður (IP-tala skráð) 27.2.2012 kl. 13:25

15 identicon

  ... 54% svörun við þessu móti - ÞAÐ ER LÉLEGT STELPUR !!!!

Það er lágmarks kurteisi og tillitssemi við þær sem eru í stjórn og þurfa að passa upp á að skrá okkur á mót og annað sem gera þarf í sambandi við það, að við hendum hér inn línum um;

- hvort við getum/viljum fara

- getum ekki svarað því strax, hvort við getum/viljum fara

Þetta eru engin geimvísindi, gera þetta amk 1 viku fyrir mót, er búið að virka svoleiðis í marga mánuði/ár, við eigum allar að kunna þetta og við fáum oft áminningu í tölvupósti/á æfingum um að á síðunni sé færsla sem þarf að svara, ef við erum ekki duglegar að fylgjast með hér... 

Íris Dögg (IP-tala skráð) 29.2.2012 kl. 12:29

16 identicon

Heyr, heyr, Íris! Ég tek undir þessi orð með þér!

Sandra Björk (IP-tala skráð) 29.2.2012 kl. 14:45

17 identicon

Sælar stelpur! Auðvitað er það sjálfsagt að láta vita hvort maður ætli á mót eða ekki. Þar sem að ég á  nóg með það að reyna að klára 3deildina finnst mér ég ekki getað tekið þátt og auðvita skrái ég mig á mót ef ég treysti mér sem sagt á líka að láta vita þegar maður kemur ekki?????? Sjáumst kv Helga

Helga hreins (IP-tala skráð) 4.3.2012 kl. 18:30

18 identicon

Eins og fram kemur í öllum bloggfærslum um skráningu á mót, þá stendur alltaf að það eigi að láta vita hvort sem þið verðið með eða ekki.

Þorgerður (IP-tala skráð) 5.3.2012 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband